KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Sérfræðingur í stafrænum verkefnum (digital consultant)

Við leitum að öflugum einstaklingum sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á stafrænum umbreytingarverkefnum og stafvæðingu ferla sem munu hjálpa viðskiptavinum okkar í að ná framúrskarandi árangri.

Dæmi um verkefni og ábyrgð:

  • Framkvæma þarfagreiningar á nýjum upplýsingakerfum.
  • Aðstoða við stafræna stefnumótun, innleiða stefnumarkandi aðgerðir og vinna með stjórnendum í stafrænni vegferð.
  • Verkefnastjórnun á stafrænum umbreytingarverkefnum og innleiðingu á stafrænum lausnum hjá viðskiptavinum.
  • Leiða ferlagreiningar og ávinningsmat með stjórnendum.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af verkefnastjórnun og / eða stafrænum umbreytingarverkefnum.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð hugsun.
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni.
  • Agile hugmyndafræði, s.s. SCRUM, Kanban.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Erik Christianson mannauðsstjóri á echristianson@kpmg.is.