Um starfið

Launasérfræðingar og hópstjóri launa á höfuðborgarsvæðinu

KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 320 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Við leitum nú að öflugum einstaklingum með reynslu og þekkingu af launavinnslu til starfa á skrifstofu okkar á höfuðborgarsvæðinu. Við leitum einnig að hópstjóra sem mun koma til með að leiða hóp launasérfræðinga.

Starfsfólk okkar þarf almennt að geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, vera lausnamiðað og njóta fjölbreytni í verkefnum, tileinka sér tækninýjungar, sem og að eiga auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini.

Hæfniskröfur launasérfræðingur

  • Reynsla af launavinnslu er nauðsynleg, kostur ef viðkomandi hefur einnig reynslu af bókhaldi.
  • Kostur að hafa reynslu af notkun H3 launakerfis og Navision.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Jákvæðni í samstarfi, lausnamiðað viðhorf og rík þjónustulund.

Hæfniskröfur hópstjóri launa

  • Góð reynsla af launavinnslu er nauðsynleg.
  • Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu og reynsla af aðkomu kjarasamninga.
  • Nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun H3 launakerfis og kostur ef reynsla af Navision.
  • Reynsla af sölumálum er kostur.
  • Hæfni til að leiða og halda utan um hóp starfsfólks.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg.
  • Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
  • Jákvæðni í samstarfi, lausnamiðað viðhorf og rík þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum öll til að sækja um óháð kyni.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út hér á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum á hsteinthorsdottir@kpmg.is

KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa rúmlega 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.