Í rekstri fyrirtækja og endurskipulagningu leggur ráðgjafarsvið KPMG áherslu á að auka virði fyrir viðskiptavininn á öllum stigum ákvörðunartöku ferlisins hvar sem félagið er statt í hagsveiflunni. 

Við erum með stóran hóp sérfræðinga sem veita fjárfestum ráðgjöf á öllum stigum fjárfestingarinnar - allt frá því að hugmynd um kaup kviknar til hugsanlegs viðsnúnings á rekstri á erfiðum tímum.  

Reynsla okkar og það fjölbreytta innsæi sem sérfræðingar okkar búa yfir innan ólíkra atvinnugreina gefur okkur einstaka innsýn sem gerir okkur að betri ráðgjöfum og eykur virði þjónustu okkar. Við ábyrgjumst að sérfræðingar okkar muni veita þér hlutlæga ráðgjöf og við aðstoðum þig á sama tíma við að lágmarka þá áhættu sem fylgir slíkum viðskiptum.