Persónuverndarlöggjöf

Í maí 2018 urðu verulegar breytingar sem höfðu töluverð áhrif á allar stofnanir og flestöll fyrirtæki þegar ný persónuverndarlöggjöf tók gildi. Þessi nýja Evrópureglugerð um persónuvernd (General Data Protection Regulation „GDPR“), tók gildi innan Evrópusambandsins í maí 2018. 

Breytingarnar hafa áhrif á öflun, úrvinnslu og meðferð gagna sem innihalda persónuupplýsingar. Viðfangsefnin eru oft flókin og erfitt að stíga fyrstu skrefin í átt að nýju regluverki. Allir þeir aðilar sem vinna með persónuupplýsingar þurfa að hlíta nýju löggjöfinni, verkefnið er stórt og ýmsir ferlar sem þarf að huga að.

Innleiðing nýju reglnanna felur í sér auknar kröfur um innra eftirlit fyrirtækja og upplýsingaskyldu til einstaklinga og persónuverndaryfirvalda. Með nýjum reglum aukast jafnframt heimildir yfirvalda til að beita sektum og birta upplýsingar um þau fyrirtæki sem sinna ekki skyldum sínum á þessu sviði.

Hvað þýða nýjar kröfur?

Hvernig getum við aðstoðað?

Hér má nálgast bækling með fimm skrefum til að hagnýta regluverkið.