Leiðandi lögmannsstofa í síbreytilegu skatta- og viðskiptaumhverfi

Hjá KPMG Law starfa á þriðja tug lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. KPMG Law er fullgild lögmannsstofa, búin sérfræðingum á ýmsum sviðum lögfræðinnar með mikla reynslu.

Lögmannsstofan starfar náið með sérfræðingum KPMG ehf. og getur á þeim grundvelli veitt mjög breiða og víðtæka þjónustu. Alþjóðlegt tengslanet KPMG Law tryggir viðskiptavinum okkar aðgang að allri nauðsynlegri lögfræðiráðgjöf um allan heim með hagkvæmum hætti.