Að finna tækifærin á óvissutímum
Forstjórar á heimsvísu eru almennt bjartsýnni á vöxt alþjóða efnahagslífsins nú en þeir voru í janúar 2022 þrátt fyrir vægan og stuttan samdrátt sem hefur áhrif á hagvöxt. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu CE0 outlook sem KPMG Global gefur út árlega. Könnunin sem lögð var fyrir 1.325 forstjóra síðasta sumar veitir einstaka innsýn í hugarfar, stefnumótun og áætlanagerð forstjóra.
Helstu niðurstöður könnunarinnar:
- Sjö af hverjum tíu stjórnendum á heimsvísu telja að samdráttur muni hafa áhrif á væntanlegan vöxt á næstu þremur árum. Þar sem áhrif á meðalhagnað fyrirtækja verða líklega 10% á næstu 12 mánuðum. Um 85% stjórnenda eru bjartsýnir á langtíma vöxt síns fyrirtækis og telja að hann muni haldast stöðugur ár frá ári.
- Heimsfaraldursþreyta og efnahagslegir þættir eru efst á lista yfir brýnustu áhyggjur fyrirtækja í dag.
- Þrátt fyrir efnahagslegar og pólitískar áskoranir hefur bjartsýni á efnahagslífi heimsins fyrir næstu þrjú árin tekið við sér og hefur ekki mælst hærri síðan fyrir faraldur snemma árs 2020.
- Bjartsýni á alþjóðlega efnahagslífið næstu 6 mánuðina er nokkur eða 73% sem gefur til kynna að forstjórar horfi til framtíðar og sjái tækifæri í óvissunni.
Bill Thomas, stjórnarformaður KPMG Global
Áskoranir í efnahagsumhverfinu hafa komið hver á fætur annarri síðustu misseri – heimsfaraldur, verðbólguþrýstingur og landpólitísk spenna – en það er jákvætt að forstjórar sem tóku þátt í könnuninni 2022 voru fullvissir um seiglu sinna fyrirtækja og tiltölulega bjartsýnir á eigin vaxtahorfur.
Þó að það komi ekki á óvart að efnahagsástandið hafi verið helsta áhyggjuefni stjórnenda fyrirtækja síðustu árin þá hafa þeir á undanförnum árum lært að takast á við ófyrirséðar áskoranir, endurskipuleggja vinnuafl sitt, losa um hindranir á aðfangakeðjunni og aðlagast landfræðilegum og efnahagslegum áhrifum. Þar sem mögulegur samdráttur er yfirvofandi hafa stjórnendur margra fyrirtækja undirbúið sig vel og leggja mikla áherslu á áætlanagerð og aðlögun. Sumir sjá tækifæri á þessum óvissutímum og horfa til tækninnar, mannauðsins og sjálfbærninnar.
Bill Thomas
Global Chairman and CEO
KPMG
Global Chairman and CEO
KPMG
Frekari upplýsingar um skýrsluna á ensku