Ása Kristín er verkefnastjóri á skatta- og lögfræðisviði og er héraðsdómslögmaður. Ása Kristín starfar á skrifstofu KPMG í Borgartúni og hefur starfað hjá KPMG frá árinu 2011. Hún hefur í starfi sínu hjá KPMG sérhæft sig í alþjóðlegum skattarétti og milliverðlagningu. Helstu verkefni eru aðstoð við félög með alþjóðlega starfsemi í tengslum við afdráttarskatta og skattskil og upplýsingagjöf í ýmsum löndum, s.s. vegna FATCA og CRS, og aðstoðað skjölunarskylda aðila með skjölun vegna verðlagningar milli tengdra aðila. Að auki hefur Ása Kristín unnið reglulega við gerð áreiðanleikakannana í mismunandi atvinnugreinum t.d. í smásölu, iðnaði og fasteignarekstri.
Ása Kristín hefur einnig komið að gerð samrunatilkynninga og samskipta við Samkeppniseftirlitið og hefur einnig unnið stjórnarháttaúttektir fyrir félög í mismunandi atvinnugreinum s.s. fjármálafyrirtækjum, skráðum félögum og almennum þjónustufélögum auk almennrar lögfræðiþjónustu á sviði félagaréttar s.s. stofnun og slit félaga, samningagerð o.fl. Ása Kristín er jafnframt stundakennari við Háskólann á Bifröst.
Hafðu samband:
Netfang: akoskarsdottir@kpmg.is
Sími: +354 545 6392, +354 699 1449
-
2012: MA gráða í skattarétti
-
2011: ML gráða í lögfræði
-
2009: BS gráða í viðskiptalögfræði
-
2004: Diploma í rekstrar og viðskiptafræði
-
2013: Héraðsdómslögmaður
-
2016- : Verkefnastjóri á skatta- og lögfræðisviði KPMG
-
2011-2015: Sérfræðingur á skatta- og lögfræðisviði KPMG