Hrafnhildur Helgadóttir

Partner og formaður stjórnar KPMG á Íslandi

KPMG á Íslandi

Hrafnhildur hefur verið hluthafi frá árinu 2010. Hún er fagstjóri endurskoðunarsviðs hjá KPMG, áður var hún yfirmaður gæðamála hjá félaginu. Hrafnhildur er formaður stjórnar KPMG á Íslandi.

Hrafnhildur hóf störf hjá KPMG árið 1996. Hún er virk í störfum Félags löggiltra endurskoðenda, er í endurskoðunarnefnd félagsins og hefur komið að gæðamálum og gæðaeftirliti félagsins. 

Hagnýt reynsla 

Hrafnhildur hefur víðtæka reynslu og þekkingu í endurskoðun og reikningsskilum.  Hún hefur sérhæft sig í endurskoðun á fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum, bæði ytri og innri endurskoðun, en jafnframt í endurskoðun stærri fyrirtækja og samstæða sem gera upp  samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.