KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.

Við erum að leita að jákvæðum, hressum og þjónustuliprum einstaklingi til að koma inn í rekstrar- og fjármálateymi KPMG á Íslandi. Starfið heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra og er frábært tækifæri fyrir einstakling sem þrífst á fjölbreyttum verkefnum og vill hafa tækifæri til að móta starf til framtíðar, í takt við áherslur KPMG í nýju vinnuumhverfi.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka viðskiptavina, símsvörun og framúrskararandi þjónusta til starfsfólks.
  • Ferðabókanir fyrir starfsfólk.
  • Umsjón með aðstöðu fyrir viðskiptavini og upplifun gesta KPMG.
  • Ýmis aðstoð við verkefni tengd bókhaldi, reikningagerð og innheimtu.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Góð kunnátta á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af sambærilegu starfi en viðkomandi þarf að vera með gott frumkvæði og skipulagshæfileika.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og brennandi áhugi á að skapa jákvæða upplifun fyrir gesti og starfsfólk KPMG.

Að vinna hjá KPMG

Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
  • Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2023.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út hér til hliðar undir "sækja um". 

Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á hsteinthorsdottir@kpmg.is eða Sigrún Kristjánsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri, á skristjansdottir@kpmg.is.